Sigurður Skúlason

shapeimage_2

Útvarp

Sigurður hefur starfað mikið hjá Ríkisútvarpinu alla tíð við leik og upplestur og leikið nokkur hundruð hlutverk í útvarpsleikhúsinu. 

Hann hefur einnig leikstýrt þar leikritum, m.a. eftir 
SofoklesGoethe, Bertholt Brecht, J.B. Priestley, Jean Paul Sartre, James Saunders, Fay Weldon og Brian Clark. 

Sigurður hefur einnig fengist við dagskrárgerð fyrir ríkisútvarpið um áratugaskeið (frá 1969) og fjallað þar um menn og málefni af ýmsu tagi, s.s. 
Nadine George og Roy Hart; Leonard Cohen; John Lennon; J.B.Priestley; Vesalingana og Victor Hugo; Vini hinnar búddísku reglu á Vesturlöndum (Friends of the western buddhist order); Tónlist í leikhúsi; Sænska sirkusleikhúsið – Við erum þúsundir; Maxím Gorki og Móðurina; Chaplin; Arja Saijonmaa; Íslensku revíuna; John Reed og tíu daga sem skóku heiminn; Finnska leikhúsið Kom; Líföndun; Jack Kornfield og bók hans Um hjartað liggur leið o.fl.